Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

skin og skurir

24. apríl 2008 klukkan 09:41

Hallo hallo....

Thad hefur svo sannarlega skipst a skin og skurir sidustu daga. Eftir langan og erfidan dag a Peking flugvelli komumst vid loksins til Malasiu thar sem solin skin a milli thess sem himnarnir hella ur fotum yfir okkur.

Sidustu tvo dagana i Shanghai nyttum vid i ad profa naerri allt matarkyns sem a ad vera spes Shanghai. Eg held eg hafi bordad yfir mig af dumpling-um.... en nammm hvad their eru godir. Vid akvadum reyndar ad fylgja einum af thessum gotusolumonnum sem eru alltaf ad reyna lokka mann af gotunni til ad kaupa feik Louis Vutton og Gucci og allt thad dot. Thetta opnadi alveg nyjan heim fyrir okkur thvi fyrir innan oskop venjulegar turista budir leynast thessar finu flottu budir. Thijs og Scott foru meira ad segja inn i bud sem var falin a bakvid skap i einhverju husasundi og vid blasti thessi lika fina bud med ollu folsudu merkjadotinu. Scott pruttadi eins og brjaladur og labbadi ut med belti og veski. Eg held ad thad se haegt ad kaupa nanast allt a gotunni, strakarnir voru ad gantast med ad spyrja um otrulegustu hluti og einn gaurinn sagdist geta selt theim tigrisdyraloppu.... vid hlogum svo mikid ad thetta for nu ekki lengra en gud ma vita hvad hefdi gerst ef vid hefdum fylgt honum

Thetta var nu ekki endirinn a verslunarleidangrinum okkar thvi daginn sem vid komum til Peking forum vid strax beint a Silkimarkadinn thar sem madur getur keypt allt milli himins og jardar og allt hrikalega vel falsad! Vid eyddum nokkrum klukkutimum tharna inni og komum ekki tomhent ut. Trikkid er ad bjoda undir einum tiunda af upphafsverdinu thvi madur getur alltaf fengid hlutinn a einum tiunda af verdinu.... otrulegt en dagsatt!

Vid akvadum nu ad gera eitthvad allt annad en ad versla thad sem eftir var af dvolinni okkar i Peking. Fyrsta heimsoknin var audvitad ad sja Kinamurinn margfraega. Okkur hafdi verid radlagt ad fara ekki a adal turista stadinn thar sem murinn hefur verid uppgerdur heldur aettum vid ad fara a einhvern annan og afskekktari stad a murnum. Vid vorum svo heppin ad hostelid baud upp a ferd a "leynistad" a murinn....liklega ekki mjog leyni thar sem thad er minibus fra hostelinu sem fer thangad a hverjum degi en okkur var sama. Vid vorum eina folkid a leynistadnum og nutum thess i botn ad ganga upp a milli turnanna og klongrast a murnum i 3 tima.

Naesta dag leigdum vid reidhjol og forum hjolandi um Peking ad skoda okkur um. Heimsottum the Forbidden City eda forbodnu borgina upp a islensku. Otrulegt mannvirki Ming og Quing keisaraaettanna, Tianamen torgid, Lama temple og fleira og fleira.Thad sem madur tok nu helst eftir i Peking er hversu mikil uppbygging a ser stad og ollu vel vid haldid. Liklega eiga Olympiuleikarnir einhvern thatt i thvi en hvert sem litid er er verid ad laga gangstettar og vegi, mala hus og lappa upp a gamlar byggingar. Annad sem vid tokum eftir er ad folkid var ansi vinalegt i Peking sem er kannski lika ahrif Olympiuleikanna thvi sagan segir ad allir Pekingbuar hafi fengid senda handbok um hvernig eigi ad haga ser ad vestraenum sid! Pinu skrytid ad aetla ad ala upp milljonir manna a nokkrum manudum. Sagan segir lika ad ad eyda einum degi i Peking er eins og ad reykja 70 sigarettur... eg var thvi storreykingarmanneskja i nokkra daga!

Annad en ad hjola um borgina og borda Peking ond var ekki gert i thetta skiptid en vid nutum thess svo sannarlega. Sidasta kvoldid okkar i Kina var nu heldur betur minnisstaett thvi vid saum 3 menn verka 2 staerdarinnar hunda a gotu uti, fyrir framan veitingastad i gotunni thar sem vid gistum. Vid nadum nu engum myndum af thessu thvi myndavelin var heima og einn mannanna veifadi exi ad okkur thegar vid komum of naerri og biladist eginlega thegar Scott tok myndir. Eg er nu bara pinu fegin ad eiga thetta ekki a mynd en eftir thetta var eg svo hand viss um ad hafa bordad hund i Kina. Serstaklega eftir ad einn strakur sem byr i Kina og var med okkur tharna sagdist aldrei borda annad en lambakjot thvi annars gaeti madur aldrei verid viss um hvad madur vaeri med a disknum. Agaett ad vita thetta sidasta daginn, eg tharf varla ad taka fram ad eg hef aldrei bordad lambakjot i Kina thvi lambid er best a Islandi. Sidustu vikuna haetti eg samt ad borda kjukling thvi aferdin a kjotinu var ekki eins og madur er vanur og bragdid ekki thad besta.... gud ma vita hvad eg hef verid ad eta herna.

Thad var hinsvegar komid ad thvi ad kvedja Kina og thar a medal Sonnu og Scott sem var ollu sarara. Vid Thijs vorum alveg komin med skammtin af Kina i bili, aetla ekki ad kvarta en mig var farid ad vanta ad sja brosandi folk a gotum uti og sidustu dogunum aetludum vid ad eyda i Malasiu og Singapore.

Vid voknudum eld snemma a sunnudagsmorgni, nanartiltekid kl. 04:00 til ad drifa okkur ut a flugvoll thar sem vid attum bokadan mida til Xi'amen i sudur kina og thadan sama dag til Singapore. Thad var nu ekki gaman ad koma a vollinn og uppgotva ad thad var ekkert flug til Xi'amen kl. 7:20 eins og stod a midanum okkar ad vid heldum (thvi afangastadurinn var skrifadur i kinverskum taknum en ekki i romonskum bokstofum). Thad var hinsvegar flug til Xi'an kl. 7:20 og thad tok okkur ekki nema orfaar sekundur ad uppgotva ad okkur hafdi verid seldur midi til rangs afangastadar. Nu voru god rad dyr i ordsins fyllstu merkingu thvi thad var ekki haegt ad breyta midanum og thvi thurftum vid ad kaupa glaenyjan mida a stadnum, thad var ad sjalfsogdu ekki odyrt og vid mattum henda 2 flugmidum i ruslid. Ekkert internet a flugvellinum svo thad var enginn sens ad boka neitt nema i gegnum soluskrifstofuna en eg var komin med svo mikid oged a ollu thessu rugli ad eg gat ekki hugsad mer ad vera degi lengur i Kina. Thad vard thvi a ad vid flugum samdaegurs til Kuala Lumpur gegn hau gjaldi en gud hvad thad var thess virdi. Deginum eyddum vid svo a Starbucks a vellinum i ansi godum sofum og skiptumst a ad sofa og drukkum kaffi thess a milli.

Thad var algjor draumur ad komast til Kuala Lumpur og sja oll brosandi andlitin sem toku a moti okkur. Vid eyddum ad lokum 2 nottum i borginni thvi hun var bara svo falleg ad thad var ekki haegt ad fara strax a strondina. Hinsvegar var hitinn alveg kaefandi og thar af leidandi var eginlega ekki haegt ad vera i borginni mikid lengur og eftir ad hafa sed Olympiueldinn tendradan og borin milli manna heldum vid a strondina. Thar sem vid eigum flug heim fra Singapore og adeins orfaa daga eftir akvadum vid ad fara ekki langt nordur heldur halda okkur eins nalaegt Singapore og mogulegt er og nu erum vid a Tiaman eyjum austan vid Malasiu. Her er ekkert nema strondin, sjorinn og fullt af brosmildu og elskulegu folki. Eg held reyndar ad eg hafi aldrei komist i jafn mikin hita og raka og nu thegar thetta er ritad bjoda himnarnir upp a sturtu og ekki hundi uti sigandi. A strondinni thar sem vid gistum er ekkert internet svo vid thurftum ad ganga i gegnum jungle-id a adra strond og eg var beinlinis ad frika ut. Thad eru ekkert sma storir maurar herna, enn staerri edlur (allt ad 2 metrar) og gud ma vita hvada onnur kvikindi leynast tharna inn a milli laufbladanna. Eg er buin ad hota Thijs ad taka taxi-bat tilbaka thvi eg tholi ekki ad fa aftur svona haan hjartslatt.

Jaeja thad er nu ekki fleira i frettum i bili en eg tharf ad haetta nuna thvi eg tharf ad krossa putta og vona ad thad haetti ad rigna sem allra fyrst svo vid komumst heim i kofan okkar.

koss og knus... GB

Gudrun Birna Gudmundsdottir
3 athugasemdir

enn meira um Kina

13. apríl 2008 klukkan 13:51

howdy klakabuar... allt gott ad fretta hedan. Hofum verid ansi upptekin sidustu 2 vikurnar og tha serstaklega vid ad berjast afram i mannhafinu herna. Thad er ekki laust vid ad madur se farin ad sakna gamla goda Islands og tha serstaklega thess ad hafa gangstettina alveg utaf fyrir sig. Thad eru hraekjandi kinverjar hvert sem madur fer svo nu forum vid alveg ad verda komin med nog af thessu.

Svo eg haldi nu afram thar sem fra var horfid i sidustu faerslu tha eyddum vid nokkrum dogum i Lijiang. Borgin er algjort turista mekka en madur ser nu eginlega bara kinverja i storum hopum, allir med eins derhufur og svo er leidsogumadurinn fremstur med fana i sama lit og hufurnar og galandi i einhverskonar mikrafon svo glymur um allt. Thegar 10 svona hopar eru saman komnir a sama blettinn er litill fridur til ad ganga um og njota en vid voknudum bara snemma og eyddum morgnunum i ad kanna svaedid. Auk thess ad skoda Lijiang forum vid i eina gongu og skodudum gljufur sem ber nafnid "Tiger leaping gorge", gangan var skemmtileg en vid thurftum ad klifa ansi bratta stiga og eg var svo fegin ad vera ekki lofthraedd annars hefdi eg aldrei komist upp aftur.

Fra Lijiang forum vid svo til Chengdu thar sem vid saum eitt og annad. Vid byrjudum a ad heimsaekja rannsoknarsetur thar sem pandabirnir eru "raektadir" og theim bjargad (ef thess tharf). Thad var mjog gaman ad sja thessi letidyr, vid forum snemma um morgun thegar theim er gefid ad borda og tha eru their liflegastir... tho their hafi verid ansi latir ad minu mati. Their syndu nu enga svaka takta, heldur satu bara og jopludu a bambus eda eplum. Vid Thijs nyttum taekifaerid og profudum ad halda a einu stykki panda en thad var svo dyrt ad halda a risapondu ad vid akvadum ad halda bara a raudum panda sem er pinulitill og likastur thvottabirni. Thetta var nu samt gaman tho svo ad thad hafi verid eins og ad halda a ketti sem bordar epli.

Vid forum lika ad sja staersta sitjandi budda i heimi sem er hogginn i fjall og stadsettur rett fyrir utan Chengdu. Vid fengum pinu sjokk thegar vid komum a rutustodina thvi thad var folk allstadar og i stad thess ad vera i 6 linum fyrir framan solubasana voru liklega 20 radir og allir ad trodast. Thijs gerdi ser litid fyrir og trodst fyrir okkar hond og vid heldum afram ad trodast allan thennan dag, sem betur fer thvi annars vaerum vid orugglega enn i Chengdu ad reyna ad kaupa mida. Vid saum buddan  eftir ad hafa bedid i taepa 2 tima og trodist eins mikid og haegt var. Vid fengum svo ad vita seinna um daginn ad thad vaeri fridagur og allir kinverjar ad nyta friid i ferdalog audvitad.

Thad er annars otrulegt med Kinverja, allir trodast herna framfyrir i radir og enginn segir neitt. Folk bara laetur vada yfir sig en eg held ad madur faeri yfirum ef madur aetladi ad stressa sig a thessu eda aesa sig. Thad er samt frekar threytandi thegar folk er alltaf ad yta manni og jafnvel tho svo madur se eina manneskjan i gongulinu aesta kinverjans er manni ytt eda hrint beinlinis. Thijs var svo pirradur um daginn thegar einhver karl ytti honum harkalega ad hann felldi karlinn i annarri tilraun og vid hlogum datt lengi vel a eftir... er madur ordin klikkadur eda hvad?

Vid forum svo i afmaelisveislu til hollenskrar stelpu sem vid kynntumst i Vietnam en byr i Chengdu. Veislan var trodfull af Hollendingum sem voru i Chengdu fyrir tilviljun og thad var gaman ad spjalla pinu hollensku og hitta gott folk. Vid gatum ekki stoppad lengi thvi vid attum flug daginn eftir kl 7 um morguninn.

Naesta stopp var svo Shanghai thar sem vid hittum Sonnu, finnska herbergisfelaga minn fra Hollandi og kaerastann hennar Scott fra USA. Thad voru audvitad fagnadarfundir thegar vid hittumst eftir 4 ar og mikid spjallad og hlegid um gamla goda tima. Scott og Sanna hittust i Hollandi svo vid thekkjumst oll mjog vel sem gerir thetta enn skemmtilegra. Vid gistum a frabaeru hosteli thegar vid komum og kynntumst fullt af godu folki til ad djamma med. 

Til ad taka okkur fri fra menguninni og gera eitthvad uppbyggjandi akvadum vid ad fara til Tunxi og thadan til Huangshan i gongu. Vid forum i lest til Tunxi og thadan i rutu til Huangshan og Mr. Hu tok a moti okkur i rutunni. Vid hofdum aldrei hitt manninn en hofdum lesid um hann i Lonely Planet. Hann tok okkur inn til sin og reddadi ollu fyrir okkur. Vid byrjudum fyrsta daginn a thvi ad fara ad heimsaekja fossa i nagreninu og nu er eg buin ad akveda ad fara ekki ad sja fleiri fossa thvi their eru lang flestir svo hrikalega omerkilegir midad vid Gullfoss. Thar ad auki migrigndi svo vid vorum oll fegin ad komast til baka til Mr. Hu og Mrs. Hu eldadi handa okkur dyrindis kvoldverd.

Daginn eftir heldum vid svo a vit aevintyranna thvi tha gengum vid upp Huangshan fjollin. Thad eru 2 mismunandi leidir upp og vid akvadum sem betur fer ad fara "audveldu" leidina upp og erfidari og lengri leidina nidur thvi vid vorum alveg daud thegar vid komum upp. Gangan tok 8 tima og thad voru endalaus threp fyrst upp i 4 tima og svo nidur. Thetta var nu samt skemmtilegt og vid vorum enn fegnari ad komast aftur til Mrs. Hu og borda otrulega godan matinn sem hun eldar.

I morgun logdum vid svo af stad aftur til Shanghai en i rutu i thetta skiptid. Eg held eg hafi sjaldan verid svona fegin ad komast a leidarenda. Rutan var smekkfull af kinverjum sem reyktu alla leidina inni i rutunni. Eg hlyt ad hafa verid graen i framan eftir 7 tima i bil med thessu lidi en vid lifdum thetta oll af... med hofudverk og angandi eins og oskubakkar en thad var gott ad komast i sturtu.

Naestu tvo daga aetlum vid svo ad vera herna i Shanghai med Sonnu og Scott en halda svo til Peking thar sem eitthvad fleira skemmtilegt hlytur ad drifa a daga okkar.

knus og Koss fra Kina
GB

Gudrun Birna Gudmundsdottir
2 athugasemdir