í stuttbuxum med blásid hárid
Hola!
Madur er ad verda svo sjóadur í spaenskunni ad ég er farin ad svara aumingja Thijs á spaensku... hann skilur audvitad ekkert svo thetta er ekkert gaman. Annars gengur mér ekkert alltaf of vel ad skilja fólkid hérna thegar thad kemst á flug thví ordin eru nú ekki alltaf thau somu og notud eru á Spáni og thar fyrir utan er framburdurinn ansi ólíkur oft á tídum.
Vid hjónaleysin skelltum okkur í klippingu í gaer. Ég var ad vonast til ad losna vid lubbann en hann er enn á hausnum á mér... skil ekkert í thessu. Vid skelltum okkur inn á hárgreidslustofuna á horninu hérna og til ad gera langa sogu stutta thá kom ég út med mikid blásid hárid á spaenska vísu sem er svona eins og hárid á frúm eins og Dorrit t.d. (Inga kannast líklega vid thetta). Allavega tók lengri tíma ad blása mig en klippa og einhvernveginn passadi thetta risa hár ekkert vid fotin mín sem litu út eins og garmar vid hlidina á hárinu. Ég saknadi allavega mikid hennar Bryndísar minnar sem bara kann ekki ad klippa mig vitlaust. Thijs var sáttur med kíví klippinguna sína enda erfitt ad klúdra svoleidis smáraedi.
Dagarnir hérna í Montevideo hafa verid rólegir og gódir. Vid gistum á gistiheimili hérna í midbaenum sem er hrikalega ódýrt, eda 1200 krónur fyrir nóttina (dbl w/facilities). Spurning hvort eitthvad gistiheimili í henni Reykjavík geti matzad thetta??? Reyndar er hrikalegur hávadi frá gotunni en laetin í loftkaelingunni yfirgnaefa gotuskrílinn naestumthví svo thetta er allt í himna lagi eing og sagt er.
Í dag skelltum vid okkur í dýragard hér í borg og mikid er ég fegin ad svona dýragardar eru ekki á hverju strái. Ég held ég hafi vorkennt hverju einasta dýri tharna inni. Búrin voru pínulítil og stundum bara eitt dýr af hverri sort sem er baedi gott og slaemt ad mínu mati. Orugglega omurlega einmannalegt fyrir blessad dýrid en ágaett ad ekki fleiri dýr búi vid svo slaemt atlaeti. Thetta var líka óoruggasti gardur sem ég hef heimsótt en ég átti hálft í hvoru von á ad maeta ljóni vafrandi um stígana, búrin voru hálf gotótt eitthvad. Mér fanst fólkid í gardinum líka eitthvad hálf veruleikafyrrt thví thad leyfdi bara krokkunum ad klifra yfir allar girdingar og henda mat til dýranna. Thad tharf enginn ad segja mér ad api eda gíraffi hafi gott af ad éta kremkex. Einn apinn var svo feitur ad hann gat varla hreyft sig og leit virkilega óhamingjusamur út.
Montevideo er annars alveg frábaer borg. Fólkid hérna afslappad og enginn stórborgarfílingur. Vid erum búin ad thramma um alla borg thvera og endilanga og byggingarnar hérna eru margarhverjar ótrulegar. Thad eru reyndar ansi margir betlarar hérna (ekki eins margir og í Brasilíu) baedi fullordnir og fullt af skítugum og tannlausum krokkum sem ég bara get varla horft á. Venst thessu líklega aldrei!
Á morgun aetlum vid ad halda áfram ferdinni og halda til Colonia del Sacramento og gista thar eina nótt, thadan til Carmelo og vera thar eina nótt. Thessir stadir eru hér nálaegt, enda í Uruguay sem er ekki stórt land. Thad verdur sárt ad kvedja Uruguay sem er algjor perla og hefur heillad okkur upp úr skónum.
Takk fyrir kvedjurnar ![]()
Hasta luego
p.s ef thid viljid kíkja síduna hans Thijs og spreyta ykkur í hollenskunni eda bara sjá fleiri myndir thá er sídan: http://thijsengudrun.waarbenjij.nu
« Til baka
Inga skrifaði
Gaman að sjá fleiri myndir, ég lokaði nú bara augunum og var komin hálfa leiðina til ykkar.
En já, spænska hárið haha það kom þá að því að önnur okkar fékk að prufa þessa hárgreiðslu. Við vorum náttúrulega eins og einhverjir útigangmenn með hárið okkar í tagli við hliðin á spánarskvísunum...
Bið að heilsa Thijs og góða ferð til Buenos Aires - þar hlýtir að vera svakalega gott loft :o)
Knús og kossar Inga
Hildur Her skrifaði
Er ekki betra líka að kvitta þar sem við erum svo margar Hildarnar í lífi þínu.
kv. HH
Ásta Björg skrifaði
Gangi ykkur allt vel.
Kv.Ásta
Bryndís skrifaði
Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur, hlakka til að heyra frá ykkur,
Góða ferð á næsta stað :)
kveðja Bryndís og Fjölskylda
Sóla skrifaði
Kveðja Sóla
Engin athugasemd