Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari

Innskráningar kubbur

enn meira um Kina

13. apríl 2008 klukkan 13:51

howdy klakabuar... allt gott ad fretta hedan. Hofum verid ansi upptekin sidustu 2 vikurnar og tha serstaklega vid ad berjast afram i mannhafinu herna. Thad er ekki laust vid ad madur se farin ad sakna gamla goda Islands og tha serstaklega thess ad hafa gangstettina alveg utaf fyrir sig. Thad eru hraekjandi kinverjar hvert sem madur fer svo nu forum vid alveg ad verda komin med nog af thessu.

Svo eg haldi nu afram thar sem fra var horfid i sidustu faerslu tha eyddum vid nokkrum dogum i Lijiang. Borgin er algjort turista mekka en madur ser nu eginlega bara kinverja i storum hopum, allir med eins derhufur og svo er leidsogumadurinn fremstur med fana i sama lit og hufurnar og galandi i einhverskonar mikrafon svo glymur um allt. Thegar 10 svona hopar eru saman komnir a sama blettinn er litill fridur til ad ganga um og njota en vid voknudum bara snemma og eyddum morgnunum i ad kanna svaedid. Auk thess ad skoda Lijiang forum vid i eina gongu og skodudum gljufur sem ber nafnid "Tiger leaping gorge", gangan var skemmtileg en vid thurftum ad klifa ansi bratta stiga og eg var svo fegin ad vera ekki lofthraedd annars hefdi eg aldrei komist upp aftur.

Fra Lijiang forum vid svo til Chengdu thar sem vid saum eitt og annad. Vid byrjudum a ad heimsaekja rannsoknarsetur thar sem pandabirnir eru "raektadir" og theim bjargad (ef thess tharf). Thad var mjog gaman ad sja thessi letidyr, vid forum snemma um morgun thegar theim er gefid ad borda og tha eru their liflegastir... tho their hafi verid ansi latir ad minu mati. Their syndu nu enga svaka takta, heldur satu bara og jopludu a bambus eda eplum. Vid Thijs nyttum taekifaerid og profudum ad halda a einu stykki panda en thad var svo dyrt ad halda a risapondu ad vid akvadum ad halda bara a raudum panda sem er pinulitill og likastur thvottabirni. Thetta var nu samt gaman tho svo ad thad hafi verid eins og ad halda a ketti sem bordar epli.

Vid forum lika ad sja staersta sitjandi budda i heimi sem er hogginn i fjall og stadsettur rett fyrir utan Chengdu. Vid fengum pinu sjokk thegar vid komum a rutustodina thvi thad var folk allstadar og i stad thess ad vera i 6 linum fyrir framan solubasana voru liklega 20 radir og allir ad trodast. Thijs gerdi ser litid fyrir og trodst fyrir okkar hond og vid heldum afram ad trodast allan thennan dag, sem betur fer thvi annars vaerum vid orugglega enn i Chengdu ad reyna ad kaupa mida. Vid saum buddan  eftir ad hafa bedid i taepa 2 tima og trodist eins mikid og haegt var. Vid fengum svo ad vita seinna um daginn ad thad vaeri fridagur og allir kinverjar ad nyta friid i ferdalog audvitad.

Thad er annars otrulegt med Kinverja, allir trodast herna framfyrir i radir og enginn segir neitt. Folk bara laetur vada yfir sig en eg held ad madur faeri yfirum ef madur aetladi ad stressa sig a thessu eda aesa sig. Thad er samt frekar threytandi thegar folk er alltaf ad yta manni og jafnvel tho svo madur se eina manneskjan i gongulinu aesta kinverjans er manni ytt eda hrint beinlinis. Thijs var svo pirradur um daginn thegar einhver karl ytti honum harkalega ad hann felldi karlinn i annarri tilraun og vid hlogum datt lengi vel a eftir... er madur ordin klikkadur eda hvad?

Vid forum svo i afmaelisveislu til hollenskrar stelpu sem vid kynntumst i Vietnam en byr i Chengdu. Veislan var trodfull af Hollendingum sem voru i Chengdu fyrir tilviljun og thad var gaman ad spjalla pinu hollensku og hitta gott folk. Vid gatum ekki stoppad lengi thvi vid attum flug daginn eftir kl 7 um morguninn.

Naesta stopp var svo Shanghai thar sem vid hittum Sonnu, finnska herbergisfelaga minn fra Hollandi og kaerastann hennar Scott fra USA. Thad voru audvitad fagnadarfundir thegar vid hittumst eftir 4 ar og mikid spjallad og hlegid um gamla goda tima. Scott og Sanna hittust i Hollandi svo vid thekkjumst oll mjog vel sem gerir thetta enn skemmtilegra. Vid gistum a frabaeru hosteli thegar vid komum og kynntumst fullt af godu folki til ad djamma med. 

Til ad taka okkur fri fra menguninni og gera eitthvad uppbyggjandi akvadum vid ad fara til Tunxi og thadan til Huangshan i gongu. Vid forum i lest til Tunxi og thadan i rutu til Huangshan og Mr. Hu tok a moti okkur i rutunni. Vid hofdum aldrei hitt manninn en hofdum lesid um hann i Lonely Planet. Hann tok okkur inn til sin og reddadi ollu fyrir okkur. Vid byrjudum fyrsta daginn a thvi ad fara ad heimsaekja fossa i nagreninu og nu er eg buin ad akveda ad fara ekki ad sja fleiri fossa thvi their eru lang flestir svo hrikalega omerkilegir midad vid Gullfoss. Thar ad auki migrigndi svo vid vorum oll fegin ad komast til baka til Mr. Hu og Mrs. Hu eldadi handa okkur dyrindis kvoldverd.

Daginn eftir heldum vid svo a vit aevintyranna thvi tha gengum vid upp Huangshan fjollin. Thad eru 2 mismunandi leidir upp og vid akvadum sem betur fer ad fara "audveldu" leidina upp og erfidari og lengri leidina nidur thvi vid vorum alveg daud thegar vid komum upp. Gangan tok 8 tima og thad voru endalaus threp fyrst upp i 4 tima og svo nidur. Thetta var nu samt skemmtilegt og vid vorum enn fegnari ad komast aftur til Mrs. Hu og borda otrulega godan matinn sem hun eldar.

I morgun logdum vid svo af stad aftur til Shanghai en i rutu i thetta skiptid. Eg held eg hafi sjaldan verid svona fegin ad komast a leidarenda. Rutan var smekkfull af kinverjum sem reyktu alla leidina inni i rutunni. Eg hlyt ad hafa verid graen i framan eftir 7 tima i bil med thessu lidi en vid lifdum thetta oll af... med hofudverk og angandi eins og oskubakkar en thad var gott ad komast i sturtu.

Naestu tvo daga aetlum vid svo ad vera herna i Shanghai med Sonnu og Scott en halda svo til Peking thar sem eitthvad fleira skemmtilegt hlytur ad drifa a daga okkar.

knus og Koss fra Kina
GB

Gudrun Birna Gudmundsdottir
Bryndís Kristjánsdóttir
 
hææ

En gaman að heyra að þig skemmtið ykkur vel. Þú verður aldeilis í formi þegar við tökum Esjuna í sumar.

Saknaðarkveðjur
Bryndís
13. apríl 2008 klukkan 15:28
Sonja
 
Hæ elskan mín

Vildi bara kvitta fyrir innlitilð, hlakka til að sjá næstu færslu .o) Biðjum að heilsa Thijs og farið svo að skipuleggja Barcelona með okkur hjónum haha.

Knúsar,
Sonja og co
21. apríl 2008 klukkan 02:18

Skrifa athugasemd