Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Frettir fra Vietnam

13. febrúar 2008 klukkan 15:28

Hae hae..... jaeja nu erum vid buin ad vera i taepar 2 vikur i Vietnam og likar bara mjog vel en eins og vanalega hefur eitt og annad drifid a daga okkar. Vid ferdudumst fra Phnom Penh i Kambodiu til Ho Chi Minh borgar (eda Saigon) sem var atakanlaus ferd ad flestu leyti. Reyndar fekk bakpokinn hans Thijs heldur subbulega sturtu a ferdalaginu. Klosettid i rutunni hafdi nefnilega lekid inn i farangursgeymsluna og bakpokinn var rennandi blautur og ansi illa lyktandi eftir ad c.a. 15 manns hofdu lett a ser yfir pokann. Thetta for nu allt vel og eftir ad vid hofdum latid i okkur heyra a skrifstofunni var bakpokanum skutlad a hotelid thar sem vid taemdum allt ur honum og svo var hann sendur i thvott og ilmadi eins og blom i haga thegar hann kom ur bjutibadinu.

Dagarnir i Ho Chi Minh foru mikid i ad rolta um borgina og njota goda vedursins. Thad tok okkur svolitinn tima ad komast inn i umferdarmenninguna herna. Thad eru nefnilega otrulega margar skellinodrur herna, likleg ein a hvern haus, og folk keyrir bara eins og thvi synist og langar thann daginn. Otrulegt en satt tha virdist thetta kerfi bara virka nokkud vel og umferdin lidur bara afram tho svo farid se yfir a raudu ljosi her og thar, enginn stressar sig a thvi. Madur tharf ad beita sma taekni thegar madur fer yfir gotur thvi thad stoppar audvitad enginn fyrir manni. Madur tharf bara ad aeda ut a gotu og ganga akvedid yfir gotuna, ekkert hik eda hlaup, og svo er agaett ad reyna ad na augnsambandi vid okumanninn. Verd ad vidurkenna ad thetta getur verid pinu adrenalinkikk.

Vid heimsottum War memorial museum thar sem vid fraeddumst um Ameriku-Vietnam stridid. Mjog ahugavert ad lesa um stridid og tha serstaklega fra hlid Vietnama, sem madur heyrir kannski ekki svo oft. Verst var ad lesa um "Agent Orange" eiturefnasprengjur sem Amerikanar letu gossa yfir sveitir og baei. Afleidingarnar audvitad skelfilegar fyrir baendur thar sem thetta eyddi ollu landi notudu til raektunar fyrir utan likamleg ahrif. Born folks sem hafdi ordid fyrir ahrifum af sprengjunum faeddust morgum arum seinna limlest eda med adra faedingargalla, t.d. vantadi augun i fullt af folki. Thetta var hrikalegt ad sja en utskyrdi ymislegt.

Einn dagin forum vid svo ad sja svokollud Chu Chi gong. Thetta eru gong sem Vietnamar grofu og bjuggu i til ad verjast arasum og felast fyrir Amerikonum. Gongin voru allt ad 250km long og voru a 3 haedum. Eg held eg hefdi nu ekki lifad af lengi a thessum timum i Vietnam thvi eg hefdi aldrei komist inn i gongin sem voru bara 90cm a haed og 60 cm a breidd. Vid saum lika fullt af gildrum og brogdum sem notud voru til ad villa um fyrir Amerikonum. I heildina var thetta mikid anti - USA tal og serstaklega fanst mer skondid thegar a einu myndbandinu var alltaf talad um einhverjar stridshetjur sem "American Killer Hero". Ekki amalegt ad fa thessa nafngift!

A medan vid vorum i Ho Chi Minh byrjadi kinverska nyja arid og allt half lamadist haegt og rolega. Naer allar verslanir lokudu og lestar, rutur og flug urdu uppfull svo vid urdum frekar oroleg ad komast ekki lond ne strond. Vid fengum tho thessa finu svefnrutu til Qui Nhon sem er litill baer vid strondina nordur af Ho Chi Minh. Vid gistum thar a skemmtilegu gistiheimili sem var agaett thvi baerinn var daudur, allt var lokad og ekkert um ad vera. Thad var meira ad segja of kalt til ad liggja i solinni. Thetta er nu ekki mikid turista mekka sem var agaett en folkid tharna hafdi mjog gaman af thvi ad sja hvitt folk og thar sem eg er nu eins hvit og haegt er tha er eg mjog vinsaelt myndefni og verd liklega i morgum myndaalbumum a vietnomskum heimilum. Aumingja Thijs skellti ser nokkur skref fra mer til ad taka myndir og svo thegar hann leit vid vorum 14 manns bunir ad umkringja mig og eftirad hafa grandskodad mig og talad um mig a Vietnomsku tha var smellt af mynd mer til mikillar undrunar.

Naest forum vid til Hoi An sem er "World Heritage Site" otrulega flott borg. Thetta var eginlega alveg eins og madur ymdindarser thegar madur hugsar um Vietnam eda Kina i gamla daga. Vid eyddum 2 dogum i ad rolta um og skoda thessar skemmtilegu byggingar. Eg thurfti ad kaupa mer trefil og fara i flispeysuna thvi thad var ansi kalt a kvoldin.

Naest var ferdinni haldid til Hue, thar stoppudum vid i nokkra klukkutima og skodudum gamla midbaeinn (Citadel) sem er lika "World Heritage Site" og lika otrulega flott. Vid vorum ormagna thennan dag og lippudumst a milli stada en thad var svo otrulega kalt og allt lokad ad vid gatum litid annad gert en ad ganga um.

Um kvoldid forum vid svo i verstu rutuferd allra tima til Hanoi. Vid bokudum s.s. saeti i svefnrutu thar sem madur faer mini koju og getur sofid. Thad gekk nu ekki alveg eftir og vid fengum eginlega enga koju bara eitt plass i "skottinu" thar sem vid mattum kuldrast med 4 Vietnomum undir c.a. 70 cm lofthaed. Vid vorum nu ekkert alveg satt thar sem vitad mal er ad vid borgum meira en heimamenn fyrir saetid. Thijs gerdi sitt allra besta en thegar rutubilstjorinn var buin ad hota i grid og erg ad kila Thijs og hringja a logguna ef vid settumst ekki tha gafst eg upp.Tharna mattum vid dusa og aumingja Thijs med vietnamskan karlman halfpartinn ofan a ser. Vid gafumst ekkert alveg upp og forum a skrifstofuna daginn eftir og kvortudum og fengum endurgreitt.... thrjoskan alveg ad drepa mann.

Nu erum vid buin ad vera 2 naetur herna i Hanoi a ansi fjorugu og skemmtilegu gistiheimili. I dag tekkudum vid okkur inn a luxushotel og aetlum ad vera her i 2 naetur thvi T-manninn minn a afmaeli a morgun og vid erum ad fagna og dekra vid okkur. Vid gaetum reyndar ekki gist a Hjalpraedishernum fyrir thennan pening sem vid borgum herna.... svo thetta er nu ekki svo mikid spred.

Annars er otrulega kalt herna og eg er farin ad kvida fyrir ad fara yfir til Kina.Vid eigum eftir ad fa sma meira gott vedur thvi i naestu viku fljugum vid til Singapore thar sem vid aetlum ad vera i 2 daga og thadan forum vid til Filipseyja thar sem vid aetlum ad sola okkur i 2 vikur.

Jaeja aetla ad fara ad fikta i dotinu herna a hotelherberginu... heyrumst sidar.
Knus a klakann... GB

Gudrun Birna Gudmundsdottir
Anna María
 

Ég var fain að hafa smá áhyggjur. Það er svo langt síðan þú skrifaðir síðast En gott að heyra að allt gengur vel og þið í góðum gír. Já, Guðrún það kom að því að hvíti liturinn þætti eftirtektarverður. Skilaðu afmæliskveðju til Thijs. Góða skemmtun áfram.
Kveðja, Anna María.
15. febrúar 2008 klukkan 13:45
Mamma
 
Elsku Guðrun.

Gott að vita að allt gengur vel og eins og ég haf alltaf sagt þá er flott að vera hvítur á hörund þó svo ég sé nú nokkuð brún eftri mína ferð.
Njóttu nú vel að vera á hóteli og látið dekra við ykkur

Koss og knús
15. febrúar 2008 klukkan 14:38
Bryndís Kristjánsdóttir
 
Hæ hæ

Til lukku með kallinn, gefeliciteerd met je verjaardag Thijs, höfðuð þið það ekki gott á hótelinu?

Ég væri nú alveg til í að hitta ykkur á Filippseyjum og sóla mig í 2 vikur en það verður að bíða betri tíma.....
Hafið þið það sem allra best, hlakka til að heyra meira
Bestu kveðjur
Bryndís
16. febrúar 2008 klukkan 15:57
Blessuð og sæl!
Alltaf gaman að lesa lýsingar á ævintýrum ykkar. Góða áframhaldandi skemmtun.

kv. Ásta
18. febrúar 2008 klukkan 11:27
Inga
 
Hæ hæ skvís

Alltaf jafn gaman að lesa ferðasögurnar þínar, æðislegar lýsingar af ævintýrum ykkar. Það væri nú ekki leiðinlegt að hitta ykkur í sólinni núna.
Til hamingju með Mr. T um daginn:)

Risa knús úr rokinu og rigningunni hér heima, Mr. F biður að heilsa.

Kv. Inga
19. febrúar 2008 klukkan 13:08
Þórdís JónaHola chica
Frábær skemmtun að lesa ferðabloggið þitt - greinilega alltaf eitthvað nýtt að gerast hjá ykkur á hverjum degi - og allt eitthvað svo svakalega spennandi sem þið eruð að gera :)
Haldið áfram að hafa það gott og upplifa eitthvað nýtt og spennandi og já - til lukku með Thjis - skilaðu kveðju til hans frá Moi
knús og krammmm
Díslíngur
23. febrúar 2008 klukkan 14:54
Öddi frændi
 
Já þú mundir sóma þér vel í dýragarðinum í Nam.... annars var ég að vinna með konu sem heitir Hue ( Vei), hún er þarna núna að tjilla einhverstaðar.
23. febrúar 2008 klukkan 16:09

Skrifa athugasemd