Kúltúrsjokk í Kambódíu
hae allir...
jaeja best ad byrja á byrjuninni og segja ykkur frá hjólaferdinni okkar um Bangkok sem var hreint frábaer. Vid fórum a thessum fínu hjólfákum um gotur og stíga Bangkok sem vid hefdum aldrei séd a roltinu. Held ég hefdi ekki vogad mer ad villast á egin vegum tharna i thessum frumskogi sem er falinn bakvid háu byggingarnar í midborginni. Vid heimsottum markad sem er opinn allan sólarhringinn og seldi allt milli himins og jardar, dautt og lifandi. Skondnast var thó ad sjá "tannlaekninn" sem seldi gervitennur og límdi upp í fólk á stadnum fyrir slikk.
Vid forum svo med bát yfir ána sem rennur eftir borginni, thar hjóludum vid svo í frumskóginum eftir stígum sem voru ekki nema kannski meters breidir og vatn allt um kring. Vid lifdum thetta nú allt af og enginn datt út í en thad er víst frekar algengt ad fólk hjóli út af tharna thví thad eru margar sveigjur á leidinni og 90 grádu beygjur.
Naesta dag kvoddum vid Thailand med trega. Ég held ad ég verdi bara ad stefna á ad fara aftur til Thailands einhverntíma á lífsleidinni thví thad er svo gaman og gott ad vera thar. Nú erum vid hinsvegar komin til Cambodiu og ég held ég geti sagt med sanni ad Taeland og Cambodia eru eins ólík og haegt er midad vid ad vera nágrannar. Cambodia er c.a. 30 árum á eftir Thailandi sem er kannski ekki ad furda midad vid allt sem thjódin hefur gengid í gegnum.
Rútan stoppadi í landamaerabaenum á Thailandi og vid thurftum ad taka túk túk og ganga svo sídasta spottann yfir landamaerin. Fá stimpla á 2 stodum og kúltúrsjokk á sama tíma. Cambodiu megin var eins og eidimork, allt var thakid sandi og folk gekk um dragandi vagna sem var tjaslad saman úr spýtum og drasli. Landamaerabaejir eru nú yfirleitt ekkert sérstaklega spennó en thessi var vidbjódur, ég var strax komin med sting í hjartad.
Naesta skref var svo ad koma okkur til Siem Reap thar sem vid áttum gistingu. Annadhvort gátum vid tekid rútu og skipt svo og latid Cambodiu -loggu mafiuna keyra okkur fyrir 60 dollara eda tekid ologlegan taxa fyrir 40 dollara. Vid hittum par frá Ameríku sem vid ákvádum ad deila bíl med og voldum seinni kostinn. Thegar mikil reikistefna hafdi átt sér stad (adallega rifrildi milli bílstjóranna sem vildu allir keyra okkur) og bakpokarnir okkar hofdu komid vid í 3 bílskottum fundum vid bílstjóra sem okkur leist á og taladi ensku. Vid skelltum okkur inn í bílinn og bidum svo medan hann borgadi loggunni mútur svo hann yrdi látinn í fridi á leidinni til Siem Reap.
Vid komumst heilu á holdnu á leidarenda thrátt fyrir ad vegurinn vaeri eins og glaenýtt thvottabretti. Sagt er ad ákvedid flugfélag borgi ákvednum stjórnmálaflokki fyrir ad halda veginum um adal landamaeri Thailands til Cambodiu lélegum. Skandall og spilling!![]()
Dagarnir í Siem Reap fóru í ad skoda Angkor Wat og oll hin Wottin ef svo ma segja. Thetta tók alveg heila 2 daga og vid leigdum okkur eitt stikki túk túk bílstjóra sem fór med okkur um allt svaedid thar til vid vorum úrvinda. Thad er hrikalega heitt hérna og mollulegt svo vid vorum nú ekki til stórraeda á kvoldin, alveg útkeyrd eftir langa daga. Angkor er ótrúlegur stadur, thad er ekki haegt ad ýminda sér ad Khmerarnir hafi virkilega byggt thessi mannvirki fyrir morghundrud árum sídan. Sérstaklega thegar madur hugsar til thess ad naer oll hús sem eru byggd í dag eru hriplekir kubbahjallar (fyrir utan thessi sem pabbi byggir). Thad er eginlega ekki haegt ad lýsa Angkor med ordum svo ég bendi bara á myndirnar.
Eitt sem madur sér hvar sem madur fer í Cambodiu er betlandi folk sem vantar á hendur eda faetur og krakkar sem eru ad selja baekur og annad dót. Thessir krakkar eru mjog klárir og kunna svar vid ollu sem madur segir vid thau og thá sérstaklega thegar madur heldur ad madur hafi afsokun fyrir ad kaupa ekki 10 postkort fyrir dollara eda eitthvad álíka. Vid Thijs ákvádum ad kaupa ekki af theim thví okkur vantar ekkert af thessu dóti og gáfum theim frekar ávexti, Extra tyggjó eda vatn og allir voru gladir.
Frá Siem Reap fórum vid svo áleidis til Phnom Phen sem er hofudborgin og thar erum vid nú. Ég veit ekki alveg vid hverju ég bjóst en ekki thessu og hér er afhverju Cambodia er spes:
* Thad eru haugar af rusli á gotunum
* lyktin er ogedsleg og stundum tharf ég virkilega ad halda fyri nefid eda ég kúgast. * Yngstu bornin ganga um berrossud i midborginni.
* Náttfot eru í tísku hérna thví annar hver madur sprangar um í náttfatasetti jafnt ad nóttu sem ad degi.
* Thad er ekki haegt ad kaupa neitt ekta hérna... allt er copy - líka baekurnar.
* hér eru naer engir ljósastaurar og allt svart á kvoldin, ég var í fyrsta skipti hraedd hérna!
* Farartaekin hérna eru annadhvort motorhjol, túktúk eda Toyota Camry (bestu bílarnir skv. bílstjórunum hérna)
I gaer fórum vid ad skoda "killing fields" og "S21 Toel Sleng". Thetta fyrr nefnda er stadurinn thar sem Raudu Khmerarnir tóku thúsundir manna af lífi, konur og born og grófu thau í fjoldagrofum. Thad er ótrúlegt ad hugsa til thess ad thad séu ekki nema 30 ár sídan thjódin gekk í gegnum thessar hormungar med Raudu Khmerana og Pol Pot í fararbroddi. Thad var ekkert sérstaklega smekklegt ad sjá allar hofudkúpurnar eda beinin og fatagarmana sem koma upp úr jordinni thegar rignir. Madur sá líka tréid thar sem litlu bornunum var hent utan í til ad drepa thau og annad tré sem hátalari var hengdur í svo hermennirnir thyrftu ekki ad hlusta á ópin og veinin í fongunum. Toel Sleng er hinsvegar barnaskóli í borginni sem Raudu Khmerarnir breyttu í fangelsi thar sem their pyndudu alla sem their héldu ad vaeru hátt settir, eda menntamenn. Fólk var drepid fyrir thad eitt ad vera med gleraugu eda tala erlent tungumál. Madur getur ekki ýmindad sér hvad thessu lidi gekk til en thetta minnir óneitanlega á helforina. Versta vid thetta allt er ad svona hlutir gerast aftur og aftur og nú er thetta byrjad í Kenýa.
Jaeja thetta er ordin heil bók hjá mér svo ég aetla ad haetta núna. Í fyrradmálid leggjum vid af stad til Vietnam svo thad er best ad setja inn fleiri myndir í albúmid og fara svo ad pakka.
Bid ad heilsa ykkur ollum og takk fyrir allar kvedjurnar.
knús - GB
Það er alltaf jafn gaman að lesa ferðasöguna þín. Já það er rétt hjá þér þetta er efni í heila bók....ekki vitlaus hugmynd......enda frábær penni á ferð....
Hlakka til að heyra meira
Bestu kveðjur úr skíta kuldanum
Bryndís