hin ymsu hof
Godan og blessadan.... ja eg er a lifi, thad eru nokkrir bunir ad hafa samband og kvarta formlega thvi theim finst eg ekki skrifa nogu oft. Tha bid eg innilega afsokunar en thad er bara svo margt skemmtilegra en ad sitja inni a ofkaeldum internetkaffihusum. Eg er ad sjalfsogdu fegin ad thad seu enhverjir sem langar ad lesa bloggid og bida jafnvel spenntir eftir faerslum... ![]()
Sidan sidast erum vid buin ad gera helling.... sem betur fer nadi Thijs ad snua solarhringnum vid en thad var ekki med hjalp svefnpilla. Aumingja strakurinn tok tvaer toflur og sat svo bara gladvakandi alla nottina, svo let hann sig hafa thad ad hanga a klosettinu heila nott ad lesa og skrifa i dagbokina sina svo han vekti mig nu ekki.
Annars forum vid til Kanchanaburi thar sem vid skradum okkur i dagsferd sem var nu ekki upp a marga fiska. Held ad vid fengjum nu morg kvortunarbref hja Iceland Travel ef vid bydum kunnunum upp a svona lummu ferd. Skodudum omerkilegan foss, vidbjodslegan ledurblokuhelli (fae hroll vid tilhugsunina um thennan helli), heita laug sem var svo heit ad thad var ekki nokkur leid ad komast ofan i og ad lokum forum vid i lestarferd tilbaka.
Thad besta vid thennan dag var safnid sem vid heimsottum, Hell Fire Pass Memorial Museum. Safnid segir sogu fanganna (adallega Bretar og Astralir) sem voru i haldi Japana i seinni heimsstyrjoldinni og voru latnir byggja lestarteina vid ansi omurlegar adstaedur. Thvilik grimmd sem atti ser stad tharna og madur heyrir kannski ekki svo mikid um thegar talad er um WWII. Hell Fire Pass var erfidasti kaflinn thvi thar thurftu fangarnir ad brjotast i gegnum berg med naer engin verkfaeri... sem sagt algjort helviti.
Dagurinn eftir var heldur skemmtilegri thvi tha heimsottum vid Tiger Temple eda tigrisdyra hof, sem er rekid af munkum i nagreni Kanchanaburi. Munkarnir hafa "tamid" tigrisdyrin svo madur getur klappad theim. Thetta var nu allt svolitid serstakt og mjog mikil gaesla. Madur stod lengi i rod eftir ad komast ad og svo var madur leiddur af starfsmanni um svaedid thar sem tigrisdyrin voru og thar fekk madur ad klappa theim i oggu pinu stund adur en madur var leiddur afram. Vid fengum allavega ad klappa 4 dyrum af ollum stardum og thau voru sem betur fer alveg kyrr a medan. Sem betur fer var eg ekki med theim sidustu thvi tha var yngsta dyrid ordid svo spennt ad hann var alltaf ad stokkva upp og henda ser utan um lappirnar a folki. Starfsmennirnir mattu hafa sig alla vid ad forna ser fyrir turistana thvi thad er nu ekkert gaman ad fa svona nogl eda kjaft a kalfann a ser. Thetta var allavega einstok upplifun og eg var nu barasta ekkert hraedd eins og eg bjost vid ad vera.
Afram heldum vid svo til Ayutthaya thar sem holl konungsfjolskyldunnar var adur en Burmar redust a borgina. Thad er thvi ekkert mikid eftir af gulli og glamur heldur frekar mikid svidin borg. Madur getur audvitad ymindad ser hversu tilkomumikid thetta var alltsaman thvi svaedid sem eru nu menjar, er risa stort. Vid hjoludum um allt svaedid a hjolskrjodum og hlutum solbruna og svita i laun.
Thad var ekki audvelt ad komast fra Ayutthaya sem er ekki gott thvi thad er tekur ekki marga daga ad skoda sig um thar. Allar rutur og lestar nordur voru fullar og vid thurftum ad bida i 2 daga. Vid forum reyndar i eina mjog stutta batsferd en annars var mikid gert af thvi ad hanga og gera ekki neitt, DVD spilarinn kom nu ad godum notum.
Vid vorum voda glod thegar vid gatum haldid afram ferdinni en ekki jafn glod thegar vid saum rutuna. Hun var greinilega smidud med Asiu markad fyrir augum og hentad engan vegin sem VIP tourist bus eins og stod utan a taekinu. Vid komumst tho heilu og holdnu a afangastad, Chiang Mai, thratt fyrir ad naer allir bilarnir a thjodveginum hafi tekid fram ur okkur.
I Chiang Mai gistum vid svo 3 naetur og skemmtum okkur vel. Gerdum litid annad en ad skoda hof og markadi. Endalaust gaman ad rolta um thessa markadi, reyndar mikid sama dotid en stundum rekur madur augun i eitthvad snidugt sem mann langar ad eignast. Hefdi geta keypt helling en nenni ekki ad bera mikid meira. Eg tharf reyndar ad fara ad aefa mig i pruttinu, er frekar slopp a thvi svidinu og borga alltaf of mikid. Thijs er ekkert skarri, hann nefnir bara tolu sem er allt of lag og vill svo ekki koma til mots vid seljandan. Thetta endar med thvi ad vid thurfum ad labba i burtu thvi hann heldur ad folk oskri a eftir okkur odyrara verd. Thegar thad gerist ekki og eg er ekki anaegd med ad hafa thurft ad sleppa thessum dil tha tharf eg ad fara med skottid a milli lappanna til baka. Frekar lummulegt og ekkert cool![]()
Vid komum i morgun aftur til Bangkok, med lest ad thessu sinni. Thetta var svona svefn lest og thegar allir voru komnir i bolid var eins og vid vaerum i einhverskonar flottamannabudum... frekar skondid. Fundum okkur hotel herna og skelltum okkur ad skoda hollina. Thad eru einhver alog a okkur med thessa blessudu holl. Vid hofum baedi komid til Bangkok adur (eg meira ad segja tvisvar) og hvorugt okkar skodad hollina. Thegar vid komum gatum vid ekki farid thvi thad var alltaf buid ad loka thegar vid vorum ad vakna og nuna er jardarfor prinsessunnar og hollin lokud i dag. Vid saum reyndar adal daemid sem er hof innan hallargardarins svo vid latum thad bara duga. A morgun aetlum vid nefnilega i hjolaferd um borgina.
Naest heyridi fra mer i Kambodiu thar sem eg mun skoda Hofid... ef svo ma segja.
Takk fyrir allar kvedjurnar
eg setti inn nyjar myndir
Gott að vita að allt gengur vel.
Koss og knús
Mamma